24 jún. 2022U20 ára landslið karla sumarið 2022 tekur þátt í Evrópumóti FIBA um miðjan júlí. Baldur Þór Ragnarsson þjálfari liðsins og aðstoðarþjálfari hans, Pétur Már Sigurðsson, hafa valið sitt 12 manna lið fyrir mótið.

Boðað var til æfinga í stórum æfingahópi leikmanna sem æfðu í úrtakshóp í byrjun júní og nú hefur lokahópurinn verið valinn.

EM fer fram 15.-24. júlí í Tbilisi í Georgíu en liðið heldur af stað 13. júlí. Ísland hefur leik í A-riðli með Rúmeníu, Hollandi, Lúxemborg og Eistlandi.

U20 karla · 2022
Ástþór Atli Svalason · Valur
Eyþór Lár Bárðason · Tindastóll
Friðrik Anton Jónsson · Álftanes
Hilmir Hallgrímsson · Vestri
Hugi Hallgrímsson · Vestri
Ólafur Björn Gunnlaugsson · ÍR / Florida Southern, USA
Ólafur Ingi Styrmisson · Fjölnir
Óli Gunnar Gestsson · Selfoss
Orri Gunnarsson · Haukar
Sigurður Pétursson · Breiðablik
Sveinn Búi Birgisson · Valur
Þorvaldur Árnason · KR

Sjúkraþjálfari: Andrés Nieto Palma