18 maí 2022

Stjarnan C urðu meistarar 3. deildar 10. flokks drengja í gær með sigri á Selfossi B í úrslitaleik í Dalhúsum. Leikurinn var sveiflukenndur framan af leik, jafn og spennandi, en með góðum leikkafla í þriðja leikhluta sleit Stjarnan sig frá, 63-83. Þjálfari drengjanna er Snorri Örn Arnaldsson.

Atli Hrafn Hjartarson var valinn maður leiksins, en hann skilaði 31 stigi, 9 fráköstum, 5 stoðsendingum og 9 stolnum boltum.

Til hamingju Stjarnan!