11 apr. 2022Í kvöld eigast Ármann og ÍR við í þriðja leik sínum í lokaúrslitum 1. deildar kvenna en leikið er um laust sæti í Subway deildinni að ári. Staðan í einvíginu er 1-1 en fjórði leikur liðanna er svo á fimmtudaginn í Seljaskóla. Þar geta sigurvegarar kvöldsins tryggt sér sæti í efstu deild með sínum þriðja sigri. 

Leikurinn í kvöld fer fram á heimavelli Ármanns í íþróttahúsi Kennaraháskólans.

🏆 1. DEILD KVENNA · ÚRSLIT
🆚 Leikur 3
🗓 Mán. 11. apríl
🎟 Miðasala á STUBB

⏰ 19:15
📍 Kennó
🏀 ÁRMANN (1) - ÍR (1)

#korfubolti