5 apr. 2022Fyrsti leikur í lokaúrslitum 1. deildar kvenna hefjast í kvöld þegar Ármann og ÍR mætast í leik eitt. Það lið sem fyrr sigrar þrjá leiki fer upp um deild og leikur í Subway deild kvenna á næsta ári.
Ármann varð deildarmeistari í vetur og ÍR varð í öðru sæti en einn sigurleikur skildi liðin að. Liðin unnu að auki hvort annað í deildarkeppninni þar sem tveim stigum munaði í báðum leikjunum milli þeirra og því von á spennandi úrslitaseríu.
Leikurinn í kvöld hefst kl. 19:15 og fer fram á heimavelli Ármanns í Kennó (íþróttahúsi Kennaraháskólans). Miðasala er í STUBB appinu.