24 mar. 2022

Aga- og úrskurðarnefnd hefur komist að niðurstöðu í tveimur agamálum sem henni hafði borist til úrlausnar.

Agamál 66/2021-2022

Með vísan til ákvæðis a. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hinn kærði, Baldur Valgeirsson, leikmaður Hamars, sæta áminningu vegna háttsemi sinnar í leik Fjölni gegn Hamri, sem fram fór þann 14. mars 2022.

67/2021-2022

Með vísan til ákvæðis a. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hinn kærði, Dwayne Ross Foreman jr, leikmaður Fjölnis, sæta áminningu vegna háttsemi sinnar í leik Fjölni gegn Hamri, sem fram fór þann 14. mars 2022.