16 mar. 2022

Ármann tryggði sér deildarmeistaratitil 1. deildar kvenna með sigri á Vestra 80-46. Þetta er fyrsti titill kvennaliðs Ármanns frá 1960. KKÍ óskar liðinu og félaginu til hamingju með áfangann.

Framundan er svo úrslitakeppni 1. deildar kvenna þar sem Ármann, ÍR, KR og Hamar/Þór taka þátt, en úrslitakeppnin hefst þriðjudaginn 22. mars.