18 feb. 2022

Leik Hamars og Skallagríms í 1. deild karla sem var á dagskrá í kvöld hefur verið frestað vegna staðfestra COVID-19 smita í leikmannahóp Skallagríms. Stefnt er að því að leikurinn fari fram í byrjun mars.