14 feb. 2022

Fimm leikjum hefur verið frestað í dag vegna ófærðar

Í Subway deild karla hefur leik Tindastóls og KR verið frestað þar sem Kjalarnesið er lokað og ekki hægt að fara norður. Sömuleiðis hefur leik Þórs Ak. og Vestra verið frestað þar sem flugi dómara leiksins var aflýst.

Í 1. deild karla hefur leik Sindra og Fjölnis verið frestað ásamt leikjum Hauka og Selfoss, og leik Hrunamanna og ÍA.