10 feb. 2022

 

Aga- og úrskurðarnefnd hefur komist að niðurstöðu í tveimur agamálum sem henni hafði borist til úrlausnar.

Agamál 48/2021-2022

Með vísan til ákvæðis c. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hinn kærði, Óskar Hjartarson, leikmaður Snæfells, sæta eins leiks banns vegna háttsemi sinnar í leik Snæfells og Þróttar Vogum í 2. deild mfl. kk, sem fram fór þann 30. janúar 2022.

Agamál 47/2021-2022

Með vísan til ákvæðis b. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hinn kærði, Brynjar Karl Sigurðsson, þjálfari Aþenu, sæta tveggja leikja banns vegna háttsemi sinnar í leik Fjölnis B og Aþenu í 1. deild mfl. kvk, sem fram fór þann 29. janúar 2022.