1 feb. 2022Leik Hauka og Hamars sem var á dagskrá í 1. deild karla í kvöld hefur verið frestað vegna sóttkvíar og einangrunar leikmanna Hamars. Mótanefnd KKÍ hefur uppfært vinnureglur sínar um frestanir vegna COVID-19 og ljóst er samkvæmt fyrirliggjandi gögnum að þrír af sjö mínútuhæstu leikmönnum Hamars eru í sóttkví og einangrun.
 
Leiknum hefur ekki verið fundinn nýr leiktími enn sem komið er.