31 jan. 2022

Tveimur leikjum í Subway deild karla hefur verið frestað vegna COVID.

Annars vegar er það leikur Tindastóls og KR sem var á dagskrá í kvöld og hins vegar leikur Keflavíkur og Breiðabliks sem var á dagskrá fimmtudaginn 3. febrúar. Stefnt er að því að báðir leikirnir fari fram mánudaginn 14. febrúar.