9 des. 2021

 

Aga- og úrskurðarnefnd hefur komist að niðurstöðu í agamáli sem henni hafði borist til úrlausnar.

Agamál 38/2021-2022

Með vísan til ákvæðis b. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hinn kærði, Brynjar Karl Sigurðsson þjálfari Aþenu, sæta eins leiks banni vegna háttsemi sinnar í leik Fjölnir gegn Aþenu, sem fram fór þann 30. Nóvember 2021.