13 nóv. 2021Subway býður á leikinn hjá stelpunum okkar á morgun sunnudag við Ungverja🏀🇮🇸!

Mikil óvissa hefur verið varðandi áhorfendur á leiki og hraðpróf því tengdu um helgina. Nú er orðið ljóst að hægt verður að taka á móti áhorfendum án hraðprófa á leikinn okkar á morgun sunnudag við Ungverjaland.

Í ljós óvissunnar þá hefur Subway ákveðið að bjóða áhorfendum frítt á leikinn til að styðja við  stelpurnar okkar.

Hægt er að fara í miðasöluappið Stubbur og undir viðburðir og sækja sér miða. Eingöngu 500 miða verða í boði í heildina á leikinn. Allir verða svo skráðir í sæti við komuna á Ásvelli.

KKÍ hvetur alla til að fara að í hraðpróf ef möguleiki er á því!

#korfubolti #subwaydeildin