8 nóv. 2021Íslenska kvennalandsliðið í körfuknattleik ferðaðist út í gær til Búkarest í Rúmeníu en þar kemur liðið saman til æfinga fyrir leikinn á fimmtudaginn. Þá leikur liðið sinn fyrsta leik í undankeppni EM, EuroBasket 2023, gegn heimastúlkum frá Rúmeníu. 

Leikurinn verður kl. 16:00 að íslenskum tíma á fimmtudaginn kemur 11. nóvember. Liðið ferðast svo heim á föstudaginn og leikur heima í Ólafssal gegn Ungverjalandi sunnudaginn 14. nóvember kl. 20:00.

íslenska fararteymið og 10 leikmenn ferðuðust í gær frá Íslandi og hittu Söru Rún Hinriksdóttur, sem leikur í Rúmeníu, og Þóru Kristínu Jónsdóttur, sem kom frá Danmörku, í Rúmeníu í lok ferðalagsins.

Skemmtileg tilviljun var að íslenski hópurinn ferðaðist með starfsmönnum og fylgdarteymi KSÍ frá Íslandi en karlalandsliðið á einmitt líka leik gegn Rúmeníu á fimmtudaginn, og því verða tveir landsleikir í Búkarest þann daginn milli Rúmeníu og Íslands. Smá töf var á seinna flugi dagsins vegna vélabilunar á leiðinni frá London en hóparnir komust á leiðarenda að lokum.

Ein breyting á hópnum · Fjórir nýliðar:
Gera þurfti eina breytingu á leikmannahópnum en Helena Sverrisdóttir er meidd og gat ekki leikið í þessum landsliðsglugga. Benedikt Guðmundsson þjálfari liðsins valdi nýliðan Emmu Sóldísi Svan Hjördísardóttur úr Fjölni í hópinn en þetta er hennar fyrsta A-landsliðsverefni. Alls eru því fjórir nýliðar í hópnum en ásamt Emmu Sóldísi eru þær Dagný Lísa, Elísabeth Ýr og Anna Ingunn nýliðar og munu leika sinn fyrsta landsleik á fimmtudaginn.

Hópurinn er því þannig skipaður:

Nafn · Lið (Landsleikir)
Anna Ingunn Svansdóttir · Keflavík (Nýliði)
Ásta Júlía Grímsdóttir · Valur (2)
Bríet Sif Hinriksdóttir · Haukar (6)
Dagbjört Dögg Karlsdóttir · Valur (8)
Dagný Lísa Davíðsdóttir · Fjölnir (Nýliði)
Embla Kristínardóttir · Skallagrímur (21)
Emma Sóldís Svan Hjördísardóttir · Fjölnir (Nýliði)
Elísabeth Ýr Ægisdóttir · Haukar (Nýliði)
Hallveig Jónsdóttir · Valur (25)
Lovísa Björt Henningsdóttir · Haukar (6)
Sara Rún Hinriksdóttir · Phoenix Constanta, Rúmenía (23)
Þóra Kristín Jónsdóttir · AKS Falcon, Danmörk (21)

Hildur Björg Kjartansdóttir, Isabella Ósk Sigurðardóttir og Helena Sverrisdóttur eru á meiðslalista og geta ekki leikið. Sigrún Björg Ólafsdóttir, sem leikur í háskóla í USA, var valin í hópinn, en gat ekki tekið þátt að þessu sinni v/ anna með skólanum úti.

RÚV sýnir leikir í beinni útsendingu á fimmtudaginn kemur kl. 16:00 að íslenskum tíma. (18:00 í Rúmeníu).

Heimasíða keppninnar: 
fiba.basketball/womenseurobasket/2023/qualifiers

(Mynd: Elísabeth Ýr, Emma Sóldís, Dagný Lísa og Anna Ingunn nýliðar á ferðalaginu í gær)