8 nóv. 2021

Föstudaginn 3. nóvember samþykkti ríkisstjórn Íslands breytingar á samkomutakmörkunum, sem tóku að hluta gildi laugardaginn 5. nóvember og taka að hluta gildi miðvikudaginn 8. nóvember. Grímuskylda er nú í gildi á áhorfendasvæðum á kappleikjum, sbr. reglugerð heilbrigðisráðherra nr. 1245/2021.

Nýjar leiðbeiningar um framkvæmd æfinga og keppni verða sendar út seinna í vikunni og birtar á heimasíðu KKÍ, en beðið er eftir að heilbrigðisráðuneytið komi upplýsingum á framfæri við ÍSÍ um breyttar útfærslur.