1 okt. 2021
Íþróttafræðideild HR (HR) og Körfuknattleikssambands Íslands (KKÍ) hafa átt í farsælu samstarfi undanfarin fjögur ár. Nýverið undirrituðu Hafrún Kristjánsdóttir og Kristinn Geir Pálsson áframhaldandi samstarfsamning til tveggja ára vegna mælinga á landsliðsfólki Íslands í körfubolta.
Markmið samstarfsins er að styðja KKÍ við að fylgjast með þróun afreksfólks í körfubolta, greina styrkleika og veikleika í líkamlegu atgervi þeirra og þróa viðmið fyrir iðkendur og þjálfara til að nýta sér. Samstarfið skapar góð tækifæri fyrir nemendur í íþróttafræði til að kynnast íþróttinni, hljóta þjálfun í mælingum á vettvangi og læra að miðla niðurstöðum svo hægt sé að nýta þær í þjálfun.
Ragnar Mar Svanhildarson og Elín Lára Reynisdóttir meistaranemar í Íþróttavísindum og þjálfun munu hafa umsjón með mælingunum, undir handleiðslu starfsmanna íþróttafræðideildar HR og með aðstoð nemenda í íþróttafræði.