16 ágú. 2021
Ísland sigraði Eistland í báðum leikjum dagsins hjá undir 18 ára stúlkna og drengja í dag
Undir 18 ára stúlknalið Íslands lagði Eistland 39-64.
Emma Sóldís Hjördísardóttir var atkvæðamest í liði Íslands í dag með 18 stig og 3 fráköst. Þá bætti Emma Theodórsdóttir við 8 stigum, 8 fráköstum og 5 stolnum boltum.
Undir 18 ára drengjalið Íslands vann Eistland 68-80.
Róbert Sean Birmingham var atkvæðamestur í liði Íslands eftir að Ólafur Ingi hafði lokið leik. Róbert skilaði 17 stigum og 3 fráköstum. Þá bætti Almar Orri Atlason við 13 stigum, 8 fráköstum og 4 stoðsendingum.