30 maí 2021

Sameiginlegt lið Þór Þ./Hamar/Selfoss/Hrunamenn er Íslandsmeistari 10. flokks stúlkna eftir 37-48 sigur á Fjölni í úrslitaleik í Mathús Garðabæjarhöll Stjörnunnar í dag.

Fjölnir hóf leikinn betur, en lið Þór Þ./Hamar/Selfoss/Hrunamenn tók forystuna í öðrum leikhluta. Frábær leikhluti Fjölnis í þriðja leikhluta gaf þeim forystuna að nýju, en endaspretturinn var Suðurlandsstúlkna, og þar með sigurinn. Hægt er að sjá myndir úr leiknum hérna.

Ása Lind Wolfram fór fyrir sigurliðinu með 7 stig, 8 fráköst, 6 stoðsendingar og 3 stolna bolta.

Matilda Sóldís Svan Hjördísardóttir var atkvæðamest í liði Fjölnis með 17 stig.