29 maí 2021

Fyrri leikdagur í úrslitum yngri flokka er í dag, en herlegheitin hefjast kl. 11:00 á úrslitaleik 9. flokks drengja og þeim lýkur með úrslitaleik stúlknaflokks klukkan 19:45 í kvöld.

Það verða því krýndir fjórir Íslandsmeistarar í dag, í 9. flokki drengja, 9. flokki stúlkna, drengjaflokki og stúlknaflokki, auk þess sem meistarar neðri deilda drengjaflokks verða krýndir. Framundan eru því fimm spennandi leikir!

Laugardagur 29. maí | TM-hellirinn (Seljaskóli)
11:00 | 9. flokkur drengja, efri deild | Stjarnan - Haukar
13:00 | Drengjaflokkur, neðri deild | Breiðablik b - KR b
15:15 | Drengjaflokkur, efri deild | Fjölnir - Suðurland
17:45 | 9. flokkur stúlkna | Stjarnan - Keflavík
19:45 | Stúlknaflokkur | Keflavík - Grindavík