28 maí 2021

Tveir risaleikir verða í kvöld í 8-liða úrslitum karla en þá fara fram tveir oddaleikir um sæti í undanúrslitunum 2021. Það ræðst því í kvöld hvaða tvö lið fara áfram en staðan er 2-2 í báðum einvígunum. Það fer eftir úrslitum kvöldsins hvaða lið Keflavík og Þór Þ. fá í undanúrslitunum en Keflavík mun sem deildarmeistari fá það lið sem lægst var í deildarkeppninni og kemst áfram í undanúrslitunum.

Báðir leikir verða  í beinni á Stöð 2 Sport! 

🍕 Domino's deild karla
🏆 8-liða úrslit · Oddaleikir
🗓 Fös. 28. maí
📺 Sýndir beint á Stöð 2 Sport
🖥 LIVEstatt á kki.is

⏰ 18:15
🏀 STJARNAN(2)-GRINDAVÍK(2)

⏰ 20:15
🏀 VALUR(2)-KR(2)

📲 #korfubolti 📲 #dominosdeildin