27 maí 2021

Í kvöld er komið að stóru stundinni þegar lokaúrslit Domino's deildar kvenna hefst tímabilið 2020-2021 en í ár leika til úrslita Valur og Haukar. Valur varð deildarmeistari í ár og Haukar urðu í öðru sæti. Valur lagði Fjölni í undanúrslitunum og Haukar lögðu Keflavík.

Allir leikir úrslitanna verða sýndir í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.

Sagan:
Valur hefur einu sinni orðið Íslandsmeistari kvenna árið 2019 en ekki var leikið til úrslita í fyrra v/ COVID-19 og eru því síðasta liðið til að hampa titilinum. Haukar hafa fjórum sinnum orðið Íslandsmeistarar í sögunni, síðast árið 2018.

Fróðleikur og upplýsingar:
·
Sögu úrslitakeppni kvenna má skoða á kki.is
· Dagskrá og stöðuna í einvígi Vals og Hauka má skoða á kki.is

Dagskrá lokaúrslita Domino's deildar kvenna: 
Leikur 1 · 27. maí kl. 20:30
Leikur 2 · 30. maí kl. 20:15
Leikur 3 · 2. júní kl. 20:15
Leikur 4 (ef þarf) · 5. júní kl. 20:15
Leikur 5 (ef þarf) · 8. júní kl. 20:15