27 maí 2021

 

Aga- og úrskurðarnefnd hefur komist að niðurstöðu í tveimur agamálum sem henni hafði borist til úrlausnar. 

Agamál 57/2020-2021

Með vísan til ákvæðis a. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hinn kærði, Marques Oliver leikmaður Skallagríms, sæta áminningu vegna háttsemi sinnar í leik Vestri gegn Skallagrím, sem fram fór þann 24. Maí 2021.

Agamál 58/2020-2021

Með vísan til ákvæðis a. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hinn kærði, Þorleifur Ólafsson, leikmaður Grindavíkur, sæta áminningu vegna háttsemi sinnar í leik Grindavík gegn Stjörnunni, sem fram fór þann 25. Maí 2021.