26 maí 2021

Úrslitamót minnibolta 11 ára drengja var haldið um helgina í HS Orku-höllinni í Grindavík.

Það var lið Njarðvíkur sem vann lokamótið með fjóra sigra í fimm leikjum og varð Íslandsmeistari en í öðru sæti varð lið Fjölnis sem hlaut silfur. Á mótinu léku UMFK, Breiðablik, Stjarnan og Hamar.

Það er Einar Árni Jóhannsson sem er þjálfari liðsins.

KKÍ óskar strákunum og Njarðvík til hamingju með titilinn!