25 maí 2021

Úrslitamót 8. flokks stúlkna fór fram helgina 15.-16. maí sl. og fór það fram í Mathöll Garðabæjar-höllinni í Ásgarði í umsjón Stjörnunnar. Það fór svo að Stjarnan stóð uppi sem sigurvegari eftir að hafa unnið alla sína leiki og voru stelpurnar því krýndar Íslandsmeistarar í mótslok.  

Næst komu í röðinni Keflavík sem varð í öðru sæti, UMFK í því þriðja og svo lið Fjölnis og Grindavíkur.

Arnar Guðjónsson og Danielle Rodriguez eru þjálfarar liðsins.

KKÍ óskar stelpunum og Stjörnunni til hamingju með titilinn!