21 maí 2021Lausar eru til umsóknar tvær námsstöður í meistaranámi í íþróttavísindum og þjálfun (MSc) við íþróttafræðideild Háskólans í Reykjavík.

Stöðunar eru kostaðar af Háskólanum í Reykjavík (HR) og Körfuknattleikssambandi Íslands (KKÍ) og munu nemendurnir ekki greiða skólagjöld meðan á námstíma stendur. Umsóknarfrestur er til 31. maí og munu nemendur hefja nám strax á haustönn, samkæmt skóladagatali.

Stöðurnar tengjast yngri stúlkna- og drengja landsliðum Íslands í körfuknattleik.

Skuldbindingar nemanda eru eftirfarandi:
- Nemandi skuldbindur sig til að gera meistaraverkefni sem tengist líkamlegri getu leikmanna stúlkna og drengja landsliða Íslands í körfuknattleik. Nemandi skrifar lokaritgerð í nánu samstarfi við leiðbeinanda (akademískan starfsmann HR), þjálfarateymi landsliða og KKÍ. Nemandi skuldbindur sig jafnframt til þess að kynna niðurstöður meistaraverkefnisins samkvæmt óskum KKÍ.
- Nemandi skuldbindur sig til þess að sjá um mælingar á yngri landsliðum stúlkna/drengja í körfuknattleik í samstarfi við þjálfarateymi þeirra, undir handleiðslu kennara íþróttafræðideildar HR á meðan námstíma stendur.
- KKÍ og þjálfarateymi yngri landsliða geta óskað eftir því að nemandi sjái um ráðgjöf er varðar líkamlega þjálfun fyrir leikmenn landsliða Íslands. Slík ráðgjöf yrði alltaf í nánu samstarfi við þjálfarateymi og undir handleiðslu kennara íþróttafræðideildar HR.
- Nemandi leitast eftir því að vinna eins mörg verkefni á námstíma og mögulegt er í tengslum við landslið KKÍ og veita þjálfarateymi aðgang að verkefnum sínum. Dæmi um slíkt væri að gera frammistöðugreiningu á landsliðum stúlkna eða drengja í námskeiðinu Frammistöðugreining í íþróttum.


Umsóknir og fyrirspurnir skulu berast á tölvupósti til: hafrunkr@ru.is og hjaltio@ru.is