18 maí 2021Skráning er hafin á KKÍ 1.a. þjálfaranámskeiðið sem fram fer helgina 11.-13. júní næstkomandi.

Kennt verður föstudagskvöld í fundarsal ÍSÍ, í íþróttasal á laugardegi og í Úrvalsbúðum á sunnudegi. 

Námskeiðið er 20 kennslustundir eða 13,5 klukkutímar. Áhersla er lögð á þjálfun minnibolta, byrjenda og barna 12 ára og yngri. Mikil áhersla er lögð á kennslu á helstu grunnþáttum eins og skotum, sendingum, fótavinnu, knattraki og á boltaæfingar. Áhersla er lögð á að kenna yngstu iðkendum grunnþætti í gegnum leiki. KKÍ þjálfari 1.a. gildir sem 25% af lokaeinkunn á námskeiðinu. Þjálfarar sem hafa lokið 1.a. eru með leyfi til að þjálfa minnibolta 9 ára og yngri.

Þátttökugjald fyrir 1.a. er 25.000 kr. ef greitt er fyrir 2. júní. Frá og með 3. júní verður þátttökugjaldið 30.000 kr. Skráning stendur yfir til og fimmtudagsins 10. júní.

Skráning og nánari upplýsingar/dagskrá námskeiðsins er að finna hérna á kki.is

#korfubolti