![Stjarnan Íslandsmeistari í minnibolta 10 ára drengja 2021](/library/Myndir/islandsmeistarar-2021/stjarnan_mb10_2021.png)
18 maí 2021
Úrslitamót minnibolta 10 ára drengja var haldið um helgina í Reykjanesbæ í umsjón Keflavíkur.
Það var lið Stjörnunnar sem vann lokamótið en strákarnir unnu alla sína fimm leiki um helgina. Næst komu í röðinni Grindavík sem varð í öðru sæti, Breiðablik í því þriðja og svo UMFK, Haukar og Þór Akureyri.
Hlynur Bæringsson er þjálfari liðsins.
KKÍ óskar strákunum og Stjörnunni til hamingju með titilinn!