18 maí 2021
Aga- og úrskurðarnefnd hefur komist að niðurstöðu í tveimur agamálum sem henni hafði borist til úrlausnar.
Agamál 53/2020-2021
Með vísan til ákvæðis a. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hinn kærði, Júlíus Duranona, leikmaður ÍA, sæta áminningu vegna háttsemi sinnar í leik ÍA gegn ÍR, sem fram fór þann 11. Maí 2021.
Agamál 56/2020-2021
Hinn kærði leikmaður, Hlynur E. Bæringsson, skal sæta eins leiks banni vegna háttsemi sinnar í leik Stjörnunnar og Grindavíkur í úrslitakeppni Domino‘s deildar mfl. kk. sem leikinn var hinn 15. maí 2021.
Úrskurð má lesa í heild sinni hér