4 maí 2021Í kvöld fer fram einn leikur í Domino’s deild kvenna þegar Valur tekur á móti Snæfelli í Origo-höllinni að Hlíðarenda. Leikurinn hefst kl. 20:15.

Valur fær deildarmeistaratitil sinn afhentan í lok leiks, þar sem þær eru öruggar með efsta sætið í ár,  þegar tvær umferðir eru eftir. Lokaumferðin eftir leik kvöldsins og leikina þrjá sem fram fara á morgun verður leikin laugardaginn 8. maí.

🍕 Domino's deild kvenna
🗓 Þri. 4. maí
📍 Origo-höllin, Hlíðarenda
🖥 LIVEstatt á kki.is

⏰ 20:15
🏀 VALUR-SNÆFELL

📲 #korfubolti 📲 #dominosdeildin