30 apr. 2021

Leik Hrunamanna og Hamars í 1. deild karla hefur verið frestað þar sem íþróttahúsið á Flúðum er lokað vegna COVID-19 smita sem komu upp í sveitarfélaginu. Ekki er ljóst á þessari stundu hvenær leikurinn fer fram, en unnið er áfram að lausn.