29 apr. 2021

Aga- og úrskurðarnefnd hefur komist að niðurstöðu í fjórum agamálum sem henni hafði borist til úrlausnar. 

Agamál 42/2020-2021

Með vísan til ákvæðis a. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hinn kærði, Pálmi Jónsson, leikmaður Hamars, sæta áminningu vegna háttsemi sinnar í leik Hamar gegn Fjölni, sem fram fór þann 23.apríl 2021.

Agamál 43/2020-2021

Með vísan til ákvæðis b. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hinn kærði, Atli Aðalsteinsson, þjálfari Skallagríms, sæta eins leiks banni vegna háttsemi sinnar í leik Vestri gegn Skallagrím, sem fram fór þann 23. Apríl 2021.

Agamál 44/2020-2021

Með vísan til ákvæðis a. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hinn kærði, Gunnlaugur Gunnlaugsson, leikmaður Vestra, sæta áminningu vegna háttsemi sinnar í leik Vestri gegn Skallagrím, sem fram fór þann 23. Apríl 2021.

Agamál 45/2020-2021

Með vísan til ákvæðis a. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hinn kærði, Davíð Guðmundsson, leikmaður Skallagríms, sæta áminningu vegna háttsemi sinnar í leik Vestri gegn Skallagrím, sem fram fór þann 23. apríl 2021.