28 apr. 2021

Rétt í þessu var FIBA að draga í seinni umferðina að forkeppni HM 2023 sem leikin verður í ágúst. Alls eru 12 lið í fjórum þriggja liða riðlum sem þýðir að hvert lið leikur fjóra leiki. Tvö efstu liðin í hverjum riðli fara áfram í sjálfa undankeppnina. Leikið verður á fjórum leikdögum milli 11.-28. ágúst og mun fyrirkomulagið hvernig leikið verður vera ákveðið síðar. 

Riðill Íslands: 

🏀 E-riðill ~ Forkeppni að HM 2023
🇲🇪 Svartfjallaland 
🇩🇰 Danmörk
🇮🇸 ÍSLAND

#korfubolti