24 apr. 2021

Búið er að birta dagatal fyrir úrslitakeppni Domino's deilda karla og kvenna sem og 1. deilda karla og kvenna.

Gera þurfti breytingar á fyrra dagatali úrslitakeppni þar sem keppnisleysið frá 25. mars til 14. apríl ýtti öllu skipulagi aftar.

Dagatalið er aðgengilegt undir Mótamál - Leikir og úrslit - Keppnisdagatal úrslitakeppni 2021.