23 apr. 2021Í Domino's deild karla í kvöld fara fram tveir leikir og hefjast þeir kl. 18:15 og 20:15. Stöð 2 Sport sýnir seinni leik kvöldsins sem er viðureign Keflavíkur og Stjörnunnar. Í fyrri leik kvöldsins eigast við suðurnesjaliðin Grindavík og Njarðvík.

Í lok kvölds kl. 22:00 er svo komið að Domino's Körfuboltakvöldi þar sem farið verður yfir alla leiki umferðarinnar og helstu tilþrifin.

Báðir leikir kvöldsins verða í beinni tölfræðilýsingu á sínum stað á kki.is.


🍕 Domino's deild karla
🗓 Fös. 23. apríl
🆚 2 leikir í kvöld!
🖥 LIVEstatt á kki.is

⏰ 18:15
🏀 GRINDAVÍK-NJARÐVÍK

⏰ 20:15
🏀 KEFLAVÍK-STJARNAN ➡️📺Beint á Stöð 2 Sport

⏰ 22:00
📺 Domino’s Körfuboltakvöld í beinni!

📲 #korfubolti 📲 #dominosdeildin