18 mar. 2021

Aga- og úrskurðarnefnd hefur komist að niðurstöðu í þremur agamálum sem henni hafði borist til úrlausnar. 

Agamál 33/2020-2021

Með vísan til ákvæðis b. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hinn kærði, Baldur Már Stefánsson, þjálfari Fjölnis, sæta eins leiks banni vegna háttsemi sinnar í leik Haukar gegn Fjölni, sem fram fór þann 09. mars 2021.

Agamál 34/2020-2021

Með vísan til ákvæðis b. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hinn kærði, Darri Freyr Atlason, þjálfari KR, sæta eins leiks banni vegna háttsemi sinnar í leik KR gegn Val, sem fram fór þann 11. Mars 2021.

Agamál 35/2020-2021

Með vísan til ákvæðis a. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hin kærða, Sólrún Sæmundsdóttir, leikmaður ÍR, sæta áminningu vegna háttsemi sinnar í leik Tindastóls gegn ÍR, sem fram fór þann 13. Mars 2021.