13 mar. 2021

54. Körfuknattleiksþing var sett klukkan 10:00 í Laugardalnum. Þingið er um margt óvenjulegt, þar sem það fer fram sem fjarþing vegna aðstæðna.

Pétur Hrafn þingforseti
Fyrir þinginu liggja fimm tillögur, en þær eru aðgengilegar á heimasíðu KKÍ ásamt öðrum gögnum þingsins.

Lárus Blöndal forseti ÍSÍ afhenti Hannesi S. Jónsson veglegan blómvönd í tilefni 60 ára afmælis KKÍ þann 29. janúar síðastliðinn.


Jóhann Steinar Ingimundarson, varaformaður UMFÍ flutti þingheim kveðju stjórnar UMFÍ.

Gert er ráð fyrir að þinginu ljúki í síðasta lagi kl. 16:30.