24 jan. 2021
KKÍ hefur frestað tveimur leikjum vegna færðar í Domino's deild karla í dag.
Þetta eru leikir Þór Ak.-KR og Höttur-Tindastóll. Leikjunum er frestað vegna lokunar á Öxnadalsheiði, en samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni þá er ekki vitað hvenær heiðin opnar þar sem enn er snjóflóðahætta á heiðinni sjálfri.
Leikirnir hafa verið settir á mánudaginn 25. janúar 2021, Höttur-Tindastóll kl. 18:30 og Þór Ak.-KR kl. 19:15.