28 nóv. 2020Íslenska karlalandsliðið leikur í dag seinni leik sinn af tveim í þessum landsliðsglugga sem fram fer í í Bratislava í Slóvakíu en þá mætum við liði Kosovó. Leikurinn í dag hefst kl. 15:00 að íslenskum tíma og verður sýndur beint á RÚV.

Ísland lék á fimmtudaginn og sigraði þá lið Lúxemborgar. Ísland og Kosovó mætust í Pristina í febrúar síðastliðnum í fyrsta landsliðsglugganum af þrem þar sem Kosovó hafði tveggja stiga sigur. Verkefni dagsins fyrir utan sigur er að ná í stærri sigur tveggja stiga sigur og eiga innbyrðis viðureignir milli liðana Íslandi í hag í riðlinum.

Hægt er að sjá nánari upplýsingar um stöðu og tölfræði leikmanna á heimasíðu undankeppninnar.
Þar er einnig að finna beina tölfræðilýsingu sem og beina útsendingu á youtube-rás keppninnar.

Liðsskipan Íslands er eftirfarandi í leiknum í dag: (landsleikir í sviga)

Breki Gylfason · Haukar (8)
Elvar Már Friðriksson · BC Siauliai, Litháen (47)
Gunnar Ólafsson · Stjarnan (21)
Hjálmar Stefánsson · CD Carbajosa Basket, Spánn (17)
Hörður Axel Vilhjálmsson · Keflavík (85)
Jón Axel Guðmundsson · Fraport Skyliners, Þýskaland (12)
Kári Jónsson · Haukar (13)
Ragnar Ágúst Nathanaelsson · Haukar (48)
Sigtryggur Arnar Björnsson · Grindavík (11)
Tómas Þórður Hilmarsson · CD Carbajosa Basket, Spánn (7)
Tryggvi Snær Hlinason · Zaragoza, Spánn (40)
Ægir Þór Steinarsson · Stjarnan (63)

Þjálfari: Craig Pedersen
Aðstoðarþjálfarar: Baldur Þór Ragnarsson og Hjalti Þór Vilhjálmsson
Sjúkraþjálfari: Halldór Fannar Júlíusson
Fararstjóri: Hannes S. Jónsson
Sóttvarnarfulltrúi: Jón Bender
Liðsstjórn: Kristinn Geir Pálsson

#korfubolti