2 sep. 2020Heimssamband körfuboltaþjálfara (WABC) eru samtök þjálfara undir merkjum FIBA. Þau hafa sett upp röð fyrirlestra með frábærum þjálfurum héðan og þaðan næstu 10 vikurnar sem fram fara á netinu. Fyrirlestrarnir verða næstu þriðjudaga og fimmtudaga á facebook-síðu samtakana. Þeir hefjast alltaf kl. 12:00 að íslenskum tíma (14.00 CET).

Meðal þjálfara sem verða með innslög (ásamt fleirum) eru þeir Scott Brooks, Mike Brown, Sergio Scariolo, Rick Carlisle, Romeo Sacchetti, Zeljko Obradovic og Ettore Messina.

Lesa má nánar um World Association of Basketball Coaches námskeiðin hérna. 

Þá er einnig að finna á vef FIBA.com frábært safn upplýsinga og æfinga fyrir þjálfara, bæði almennt og svo ýmsar æfingar eftir aldri en þetta efni er sérstaklega fyrir nýja þjálfara og þá unga leikmenn.