1 sep. 2020

Eftir langa bið hefst nýtt keppnistímabil í kvöld á sjö leikjum í drengjaflokki. Ekki er þó hægt að taka við áhorfendum á öllum leikstöðum.

Fyrsti leikur keppnistímabilsins verður í Keflavík þar sem Stjarnan b kemur í heimsókn í 2. deild drengjaflokks. Hægt er að sjá yfirlit yfir þá leiki sem leiknir verða í kvöld hér.

Í samræmi við Tilmæli og reglur um framkvæmd æfinga og keppni aðildarfélaga KKÍ vegna COVID-19, þurfa félög að senda inn og fá samþykkt svæðaskiptingu leikvanga áður en tekið er á móti áhorfendum. Það er í vinnslu, en hægt er að sjá lista yfir þau félög sem geta tekið við áhorfendum hér, en listinn verður uppfærður eftir því sem fleiri félög bætast við. Þau félög sem eru ekki með samþykkta svæðaskiptingu geta ekki tekið á móti áhorfendum á leiki.