27 ágú. 2020

KKÍ heldur dómaranámskeið fyrir alla áhugasama í byrjun september. Námskeiðið fer fram á netinu og fer fram laugardaginn 5. september. Áætlað er að það standi yfir milli kl. 09:30-16:00.

Þátttakendur taka þátt í fjarnámi á netinu og verður farið yfir kennsluefni leiðbeinanda og þátttakendur leysa verkefni sjálfir og saman í hóp. Mikilvægt er að þátttakendur hafi tölvu með vefmyndavél og nettengingu til að taka þátt.

Á námskeiðinu verður farið yfir öll grunnatriðin í dómgæslu svo sem reglur og staðsetningar og hljóta þeir sem standast námskeiðið réttindi til þess að dæma hjá öllum yngri flokkum. Þar með talið í  drengja-, stúlkna- og unglingaflokkum og í neðri deildum í meistaraflokkum (að 1. deildum undanskildum). Þá geta áhugasamir farið á niðurröðun dómaranefndar í leikjum á vegum KKÍ óski þeir þess.

Skráning er hafin hér að neðan og er þátttaka öllum að kostnaðarlausu:

Skráning er hafin hérna