15 ágú. 2020Landslið kvenna mun koma saman og æfa um helgina líkt og staðið hefur til frá í vor. Búið er að samþykkja reglur af yfirvöldum sem KKÍ og HSÍ unnu að í sameiningu fyrir æfingar sinna félagsliða og verður þeim fylgt til fullnustu. Hægt er að lesa um reglurnar hérna nánar, en þær fjalla um skilyrði og sóttvarnarreglur til æfingahalds í íþróttahúsum.

Benedikt Guðmundsson boðaði eftirtalda leikmenn hér fyrir neðan til æfinga að þessu sinni og undirbúa sig fyrir komandi vetur. Framundan á tímabilinu eru leikir í undankeppni EM kvenna, en það mun koma í ljós í byrjun september hjá FIBA, alþjóða körfuknattleikssambandinu, hvort af þeim landsliðsgluggum verður sem eru á dagskránni í nóvember og febrúar. 

Æfingahópurinn er þannig skipaður:

Ásta Júlía Grímsdóttir · Valur/HBU, USA
Ástrós Lena Ægisdóttir · KR
Birna Valgerður Benónýsdóttir · Kelavík/Binghamton, USA
Bríet Sif Hinriksdóttir · Haukar
Dagbjört Dögg Karlsdóttir · Valur
Elín Sóley Hrafnkelsdóttir · Valur/University of Tulsa, USA
Emelía Ósk Gunnarsdóttir · Keflavík
Eva Margrét Jónsdóttir · Haukar
Guðbjörg Sverrisdóttir · Valur
Hallveig Jónsdóttir · Valur
Hildur Björg Kjartansdóttir · KR
Isabella Ósk Sigurðardóttir · Breiðablik
Katla Rún Garðarsdóttir · Keflavík
Lovísa Björt Henningsdóttir · Haukar
Margrét Kara Sturludóttir · KR
Salbjörg Ragna Sævarsdóttir · Keflavík
Sara Rún Hinriksdóttir · Leicester Riders, Englandi
Sóllilja Bjarnadóttir · KR
Þóra Kristín Jónsdóttir · Haukar

Leikmenn sem ekki gátu æft en voru valdir í hópinn:
Sigrún Sjöfn Ámundadóttir, Skallagrím, er meidd og Sylvía Rún Hálfdanardóttir gaf ekki kost á sér að þessu sinni. Þrír leikmenn, þær Þóranna Kika Hodge-Carr (Iona Collage), Sigrún Björg Ólafsdóttir (University of Tennessee) og Thelma Dís Ágústsdóttir (Ball State, USA), voru líka boðaðar en eru allar komnar út til USA þar sem þær verða við nám í vetur. Þá er Helena Sverrisdóttir barnshafandi og frá æfingum að sinni.