19 des. 2019Aga- og úrskurðarnefnd hefur komist að niðurstöðu í tveimur agamálum sem henni hafði borist til úrlausnar.

Agamáls 29/2019-2020
Með vísan til ákvæðis a. liðar 13. gr. reglugerðar um aga - og úrskurðarmál en einnig athugasemda dómara í atvikaskýrslu, sbr. c. lið 13. gr. nefndrar reglugerðar, skal hinn kærði, Jón Arnór Stefánsson, sæta eins leiks banni vegna háttsemi sinnar í leik Grindavíkur og KR í Geysir bikarnum, mfl. kk., sem fram fór þann 6. desember 2019.

Agamál 30/2019-2020
Með vísan til ákvæðis b. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál, skal hinn kærði Chaz Franklin, þjálfari ÍA, sæta eins leiks banni vegna háttsemi í leik Leiknis Reykjavíkur gegn ÍA í Íslandsmóti 2. deildar karla sem leikinn var 8. desember 2019.