17 nóv. 2019
Íslenska kvennalandsliðið leikur sinn annan leik í undankeppni EM, EuroBasket Women 2021, í dag kl. 15:00 að íslenskum tíma þegar liðið leikur ytra í bænum Chalkíkda í Grikklandi.
Gríska liðið tapaði sínum fyrsta leik á útivelli með sex stigum fyrir Slóveníu og eru með mjög sterkt lið í dag og verður verðugt verkefni að mæta þeim. Okkar stelpur er staðráðnar í að bæta sig frá fyrri leiknum á fimmtudaginn og gefa allt í leikinn í dag gegn gríska liðinu.
Leikurinn verður í beinni útsendingu á RÚV.
Hægt verður að fylgjast með lifandi tölfræði, úrslitum úr öðrum leikjum og stöðu í riðlum á heimasíðu keppninnar hérna.
Íslenska landsliðið gegn Grikklandi í dag verður þannig skipað:
# Leikmaður F. ár Staða Hæð Félagslið (Leikir)
3 Lovísa Björt Henningsdóttir 1995 M 185 Haukar (1)
4 Helena Sverrisdóttir 1988 F 184 Valur (76)
5 Hildur Björg Kjartansdóttir 1994 M 185 KR (31)
9 Dagbjört Dögg Karlsdóttir 1999 B 169 Valur (3)
10 Gunnhildur Gunnarsdóttir 1990 B 176 Snæfell (35)
11 Emelía Ósk Gunnarsdóttir 1998 B 180 Keflavík (8)
13 Þóra Kristín Jónsdóttir 1997 B 173 Haukar (16)
14 Sara Rún Hinriksdóttir 1996 F 180 Leicester Raiders (18)
19 Sigrún Björg Ólafsdóttir 2001 B 174 Haukar (6)
21 Hallveig Jónsdóttir 1995 B 180 Valur (20)
24 Guðbjörg Sverrisdóttir 1992 B 180 Valur (19)
26 Sylvía Rún Hálfdánardóttir 1998 F 181 Valur (3)
Þjálfari: Benedikt Guðmundsson
Aðstoðarþjálfari: Halldór Karl Þórson
Sjúkraþjálfari: Sædís Magnúsdóttir
Styrkarþjálfari: Bjarki Rúnar Sigurðsson
#korfubolti #eurobasketwomen