1 nóv. 2019Í kvöld er komið að fyrstu leikjunum í Geysisbikarnum þessa leiktíðina en þá hefst 32-liða úrslit karla með tveimur leikjum. Alls eru skráð 26 lið til leiks hjá körlunum og því verða 10 viðureignir í fyrstu umferð karla þar sem sex lið sitja hjá. Eftir munu þá standa 16 lið í næstu umferð. 

Geysir bílaleiga er áfram stoltur styrktaraðili Bikarkeppni KKÍ líkt og í fyrra.

Lifandi tölfræði verður frá öllum leikjum Geysisbikars karla og kvenna frá upphafi til enda. 

Í kvöld fara fara fram tveir leikir og um helgina verða leiknir aðrir sex leikir, tveir á mánudagskvöldið og einn á föstudaginn þann 8. nóv.


🏆 Geysibikarinn 2020 🚗
➡️ 32-liða úrslit karla
🖥 LIVEstatt á kki.is
📲 #korfubolti

📍 Sandgerði
⏰ 19:00
🏀 REYNIR S. - ÍA

📍 DHL-höllin
⏰ 20:00
🏀 KR-B - ÁLFTANES
📺 Sýndur beint netinu á krtv.is

#geysisbikarinn #korfubolti