28 maí 2019Helgina 18.-19. maí var leikið úrslitamót í minnibolta 11 ára drengja 2019 í Höllinni á Akureyri
Það var lið Stjörnunnar sem stóð uppi sem Íslandsmeistari 2019.
Stjarnan vann alla fimm leiki helgarinnar og vann Breiðablik 24:22 í lokaleiknum og stóð því uppi sem Íslandsmeistari.
Þjálfari liðsins er Berry Timmermans.
KKÍ óskar Stjörnunni til hamingju með titilinn!
#korfubolti