4 mar. 2019Í kvöld fara fram tveir leikir í Domino's deild karla en þá mætast efstu tvö liðin í deildinni, Stjarnan sem er í öðru sæti með 28 stig og Njarðvík sem er með 30 stig, en leikið verður í Garðabænum á heimavelli Stjörnunnar. Þá mætast Keflavík og Haukar í Keflavík en báðir leikir kvöldsins hefjast kl. 19:15. 

Stöð 2 Sport verður í Garðbænum og sýnir beint frá leiknum í kvöld. Að honum loknum tekur svo við Domino's körfuboltakvöld kl. 21:10 þar sem farið verður yfir síðustu leiki hjá körlum og konum.

🍕 Domino's deild karla
🗓 Mánudaginn 4. mars
🖥 LIFANDI tölfræði á kki.is
⏰ 19:15

🏀 STJARNAN-NJARÐVÍK ➡️📺Sýndur beint á Stöð 2 Sport
🏀 KEFLAVÍK-HAUKAR

➡️Domino's Körfuboltakvöld ⏰21:10

#korfubolti #dominosdeildin