13 feb. 2019

Valur og Snæfell mættust í undanúrslitum Geysisbikarsins í meistaraflokki kvenna fyrr í kvöld.

Mikil barátta og mikið fjör einkenndi leikinn og mátti sjá leikmenn oft í golfinu að berjast um boltann. Baráttan skilaði sér út í stúkú þar sem stemningin var frábær. Staðan í hálfleik var 45- 42 Val í vil í hörkuspennandi leik.

Í seinni hálfleik var jafnt á öllum tölum og skiptust liðin á því að taka áhlaup. Síðasta áhlaupið kom frá Val sem hafði betur í kvöld 83-72.

Mæta þær Stjörnunni í úrslitaleik á laugardag kl. 13:30.

Til hamingju Valur.