13 feb. 2019

Breiðablik og Stjarnan mættust í undanúrslitum Geysisbikarsins í meistaraflokki kvenna fyrr í dag.

Leikurinn var hraður frá byrjun og bæði lið komu til leiks í háum gír. Staðan í hálfleik var 51 – 38 fyrir Stjörnunni en Danielle Rodriguez, leikmaður Stjörnunnar, lokaði hálfleiknum með magnaðri flautukörfu langt utan af velli.

Í seinni hálfleik var hraðinn aðalsmerki leiksins og gáfu leikmenn beggja liða okkur hörkuskemmtilegan leik fullan af tilþrifum. Lokatölur 82 – 103 fyrir Stjörnunni í vil.

Stjarnan er komin áfram í bikarúrslitin sem verða á laugardaginn 16. febrúar kl. 13:30.

Til hamingju Stjarnan.