22 nóv. 2018Í kvöld fara fram þrír leikir í Domino's deild karla kl. 19:15.

Stöð 2 Sport sýnir beint frá leik Þórs Þ. og Skallagríms í Icelandic Glacial höllinni í Þorlákshöfn.

KRTV.is verður svo með netútsendingu til áskrifenda sinna frá KR-Grindavík úr DHL-höllinni og tindastolltv.com verður með opna útsendingu frá leik Tindastóls og ÍR í Síkinu á Sauðárkróki.

🍕 Domino's deild karla í kvöld
🗓 Fimmtudagurinn 22. nóv.
🖥 Lifandi tölfræði frá öllum leikjunum á kki.is
⏰ 19:15

🏀 Þór Þ.-Skallgrímur ➡️📺Sýndur beint á Stöð 2 Sport
🏀 Tindastóll-ÍR ➡️Beint á netinu á tindastolltv.com
🏀 KR-Grindavík ➡️Beint á netinu á KRTV.is

#korfubolti #dominosdeildin